Íslandsmót ehf er fyrirtæki með sérhæfingu í uppsetningu og þjónustu við ráðstefnur og hvers konar viðburði og fundarhöld.
ICEMAN eða Iceland Convention Event Management er vörumerki fyrirtækisins á erlendum mörkuðum.
ICEXPO er sýningardeild í eigu Íslandsmóta ehf sem starfar að sýningar - og kaupstefnuhaldi á Íslandi, bæði á eigin vegum og fyrir aðra. ICEXPO hefur mikla reynslu af sýningarmálum og getur þar af leiðandi boðið fyrsta flokks þjónustu.
Markmið fyrirtækisins er að þjónustan sé persónuleg og að reynsla og þekking starfsmanna geri viðburð að árangursríku verkefni og styrki ímynd gestgjafa.
Hvað einkennir fallegt bros?
1.10.2009 | 14.57

25. ársþing Tannlæknafélags Íslands verður haldið dagana
13.-14. nóvember 2009 á Hilton Nordica hóteli. Fyrirlestrar að þessu sinni eru íslenskir og verður viðfangsefni fyrirlestra þeirra "bros". Samhliða ársþinginu verður sýning á nýjungum í tækni og vörum tengdum tannlækningum.