Ráðstefnur og fundir

Við aðstoðum gestgjafa við að finna hentugan stað og aðra þjónustu til þess að þú getir boðið að halda næstu ráðstefnu, viðburð eða fund hérlendis. Við leggjum áherslu á náin samskipti við gestgjafa og förum yfir alla þjónustu hjá birgjum með tilliti til gæða þeirrar þjónustu sem veitt er hverju sinni. 

    Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ráðstefnur, fundi og viðburði.

    Við gerum kostnaðaráætlun, erum með ráðgjöf og aðstoðum við allan undirbúning varðandi bókanir og aðra þjónustu.

    Við sjáum um skráningu, látum prenta gögn og ef þörf er á að setja upp heimasíður fyrir viðkomandi verkefni.

    Við bókum gistirými og sjáum um skráningu þátttakenda, veitum upplýsingar og bókum afþreyingu fyrir gesti og maka þeirra eftir þörfum. Við sjáum um að allur tæknibúnaður sé til staðar og túlkun fyrir ráðstefnugesti.

    Við aðstoðum við gerð dagskrár fyrir ráðstefnuna bæði félagslega og faglega og sjáum um erlenda gestafyrirlesara, hótel, ferðir og alla aðra þjónustu sem gestgjafar óska eftir.

    Við aðstoðum á ráðstefnu með sérhæfðu starfsfólki og önnumst fjölmiðlatengsl.

    Við sjáum um fjármálaumsýslu og lokauppgjör við birgja og bjóðum ávallt hagstæðustu kjör fyrir öll verkefni.

    Íslandsmót ehf ICEMAN / iceXpo Grandagarði 14, 101 Reykjavík, Iceland
    Tel.: +354 534 7010  Fax: +354 534 7014  E-mail: info@islandsmot.is