IceXpo

IceXpo er í eigu Íslandsmóta ehf. og starfar sjálfstætt að sýningar- og kaupstefnuhaldi á Íslandi, bæði á eigin vegum og fyrir aðra. Helstu viðburðir sem deildin hefur staðið fyrir eru meðal annars sýningin Matur sem IceXpo hefur haft umsjón með frá árinu 2000, sýningin Hönnun og heimili sem var fyrsti viðburður í nýrri Laugardalshöll, haldin í nóvember 2005 og október 2007 í samstarfi við Hönnunarvettvang, Sumar 2007, ferða- og golfsýning í apríl 2007 í samstarfi við Ferðamálastofu og Golfsamband Íslands, Konan 2007, Golf á Íslandi, febrúar 2006, haldin í samstarfi við Golfsamband Íslands, kaupstefnan Rekstur, haldin í október 2004 og Orkan okkar, sýning unnin í samstarfi við Orkuveitu Íslands í tilefni af 100 ára afmæli raforku á Íslandi.


IceXpo hefur það að markmiði að setja upp faglegar og markvissar sýningar.

Sýningar eða kaupstefnur fyrir fyrirtæki - Okkar þjónusta 

  • Aðstoðum við val á staðsetningu viðburðar
  • Umsjón með undirbúningi og framkvæmd, þ.m.t. samningar við þjónustuaðila.
  • Hönnun á sýningasvæði og umgjörð viðburðar
  • Umsjón hönnunar- og útsendiefnis til fyrirtækja
  • Samskipti við styrktaraðila og sýnendur
  • Umsjón með auglýsinga- og kynningarefni
  • Reikningagerð og innheimta
  • Annað eftir samkomulagi


Viðburðir á vegum iceXpo - Íslandsmót
Ef þú ert að leita að ákveðnum viðburði  eða ert með aðrar spurningar þá vinsamlegast hafðu samband með tölvupósti á netfangið info@islandsmot.is

















Íslandsmót ehf ICEMAN / iceXpo Grandagarði 14, 101 Reykjavík, Iceland
Tel.: +354 534 7010  Fax: +354 534 7014  E-mail: info@islandsmot.is