Samstarfsaðilar
Þetta skemmtilega myndband er hluti af markaðsherferð sem nýlega vann hin virtu ICCA Best Marketing Awards. Góða skemmtun!
Fréttir
Pop Tech 2012
Til að leita svara við hinum ágjörnu spurningum um hvað valdi því að sum kerfi, samtök, samfélög, og fólk brotni meðan önnur rísa upp, stóð Pop Tech, í júní 2012, fyrir alþjóðlegri ráðstefnu fræðimanna, framkvæmdaraðila og hugmyndasmiða sem koma að greinum eins og alþjóðavæðingu, alþjóða viðskiptum, umhverfisrannsóknum, félagsvísindum, hagfræði, almannaheill, tækniframförum, hamfarastjórn og samfélagsmálum þar sem viðfangsefnið beindist að meiri seiglu og sveigjanleika.
Bleika Kvöldið
Bleika kvöldið 2011
Íslandsmót tók að sér að sjá um hið árlega Bleika kvöld Krabbameinsfélags Ísland sem er lokahnykkurinn á kynningu og sölu á bleiku slaufunni hvert ár.
Fimmtudagskvöldið 27. október 2011 komu yfir eitt þúsund konur á konukvöld í Hörpunni. Ýmiss konar skemmtun var í boði en unnið var hörðum höndum að því að útbúa sem fjölbreytilegasta dagskrá. Kvöldið heppnaðist með eindæmum vel og gestir virtust skemmta sér hið besta. Þetta er þriðja árið í röð sem bleika konukvöldið er haldið og er tilgangurinn sá að eiga góða og skemmtilega kvöldstund en ekki síst að hvetja til árvekni gegn krabbameinum hjá konum.
Dagskrána má sjá hér að neðan.
Smellið til að sjá video og myndir.
66. Umdæmisþing Rótarý
Rótarýklúbburinn Reykjavík-Austurbær sá um undirbúning umdæmisþings að þessu sinni en þingið var haldið á Icelandair Hótel Natura við Reykjavíkurflugvöll, 14.-15. október . Þema þingsins var ''Mannúð í verki''. Allir rótarýfélagar voru velkomnir, en hægt var að skrá sig á einstaka hluta þingsins.
Dagskrána má sjá hér að neðan.








